breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Enn er verið að auka flækjustig og fara þvert á gefin loforð um að auka gagnsæi sem var, til að halda því til haga, líka eitt af tískuorðunum í kosningabaráttunni. Hér er líka um krónutöluhækkun að ræða. Ég vildi bara minna á það og minna á fyrri ummæli hæstv. forsætisráðherra þegar hann sat hér sem óbreyttur þingmaður og talaði sig hásan um að slíkar hækkanir kæmu verst niður á þeim sem síst skyldi. Hvað hefur breyst? Það hefur náttúrlega ekkert breyst. Það hefur bara verið skipt um stól.