breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Ég vil bara vekja athygli á því að hér er kjörið tækifæri fyrir þingmenn meiri hlutans til að hækka ekki kílómetragjald vegna notkunar hreinorku- og tengiltvinnbifreiða. Hér hefur því verið haldið fram að þetta sé í raun og veru fyrir umhverfið og það sé verið að stuðla að því að bílar sem eru 100% rafmagnsbílar séu ódýrari. Er ekki kjörið að láta bara verðbólgumarkmið Seðlabankans duga, 2,5% hækkun, þegar kemur að þessum bifreiðum? Ég vil vekja athygli á því hvað verið er að greiða atkvæði um hér.