breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Við greiðum atkvæði um hækkun á kílómetragjaldi á rafbíla og tengiltvinnbíla, nýorkubíla. Ég velti fyrir mér, fyrst við erum með sérlög um kílómetragjald sem átti að vera til einföldunar, að allt væri í sama kerfi, af hverju þessi breyting var ekki bara þar og af hverju það er þá áfram munur á rafbílum og almennum bílum ef þetta átti að vera eitt og sama kerfi fyrir alla. Hér er þetta að fara upp í 6,20 eða 6,25 kr. rafmagnsbílarnir sem eru 6,95 kr. í lögunum um kílómetragjald sem við afgreiddum í gær. Allt um þessa einföldun og samræmingu — ég er ekki alveg að ná til botns í því máli hjá hæstv. ríkisstjórn.