breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Þótt 1. minni hluti, sem borinn er fram af hv. þm. Nönnu Margréti Gunnlaugsdóttur og Miðflokknum, hafi gefið þingheimi tækifæri til að draga úr sárustu kvölinni vegna þessarar skattahækkunar þá leggur Miðflokkurinn áherslu á það og bendir á það að í tilefni þess að hér er verið að leggja á nýtt kerfi, skattheimtu á bifreiðar með kílómetragjöldunum, sem sagt er að eigi að einfalda þá skattheimtu, þá er ekkert fráleitt að halda því fram að það sé einföldun á meðan gjald eins og þetta, bifreiðagjaldið, er enn þá lagt á bifreiðaeigendur. Ég skora á hæstv. ríkisstjórn að taka þetta gjald til endurskoðunar vegna þess að það standa engin rök til þess að halda þessari gjaldtöku og skattheimtu áfram, bifreiðagjaldinu, og halda þar með í flókið og ógagnsætt kerfi. (Forseti hringir.) Miðflokkurinn greiðir að sjálfsögðu atkvæði gegn hækkun þessara gjalda.