157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:34]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Ég er hér á svipuðum nótum og hv. þm. Sigríður Á. Andersen um það að hér er gullið tækifæri til að einfalda kerfið fyrst það er yfirlýst markmið þó að það sé ekkert sem bendi til þess í framkvæmd. Við tókum þetta meira að segja til umræðu í nefndinni og spurðum út í það í meðförum nefndarinnar hvort ekki hefði verið rétt að fella bifreiðagjöldin niður og færa það inn í kílómetragjaldið fyrst það er verið að taka það svona almennt upp. Ég ætla að benda á það að þrátt fyrir að það sé sett kílómetragjald á bensín- og dísilbíla munu þeir enn þá þurfa að borga gjald við dæluna, eins og kolefnisgjald og svo að sjálfsögðu virðisaukaskattinn, þannig að það er enga einföldun að finna í þessum málum.