breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Það er þannig að við upptöku á kílómetragjaldi er meiningin að færa þungann í gjaldheimtunni yfir á notkun. En ríkisstjórnin svífst einskis í að auka álögur á venjulegt fólk. Kílómetragjaldið er vissulega hækkað, krónutölurnar eru hækkaðar um 3,7 þegar 2,5 hefðu verið skynsamlegri skilaboð. Vörugjöldin eru snarlega hækkuð eins og við erum búin að fara í gegnum og hér er líka verið að hækka bifreiðagjald í staðinn fyrir að draga úr því. Bifreiðagjald leggst á alla bíla, þar á meðal bíla sem standa á bílasölum. Við hækkun á þessum vörugjöldum, og við allar hækkanir sem ríkisstjórnin hefur verið að boða, mun einkaneyslan dragast saman þannig að bílar sem bílasalar hafa keypt eða eiga munu standa á bílasölunni í marga mánuði og af þeim verður bifreiðagjald greitt þó að ekki sé verið að aka þeim um vegina. Rökin fyrir því að viðhalda þessum skatti sem var settur á til þess að byggja eitthvert bókasafn eru því fráleit. Stefnan virðist vera sú að skattleggja allt.