breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Hér erum við að greiða atkvæði um framlengingu á því að mega ráðstafa fjármunum í Framkvæmdasjóð aldraðra og úthlutuninni þar. Í rauninni hefur Framkvæmdasjóðurinn hálfpartinn verið lagður niður, alla vega stjórn hans og annað, því að það er komið nýtt fyrirkomulag í þetta. Ég vildi bara koma hér upp og minna hæstv. ríkisstjórn á og hvetja hana til dáða í að koma á nýju fyrirkomulagi og samningi við sveitarfélögin og aðra rekstraraðila á hjúkrunarheimilum um hvernig þessi umskipti verði kláruð. Þetta er ákvæði sem bíður eftir að sú vinna verði kláruð. Við styðjum að það sé hægt að úthluta úr sjóðnum til uppbyggingar hjúkrunarheimila á meðan úr því er skorið.