157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:44]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Hér greiðum við atkvæði um mjög mikilvæga breytingartillögu frá okkur í Sjálfstæðisflokknum sem snýr að því að framlengja núverandi fyrirkomulag heimildar til að greiða hluta af séreignarsparnaðinum inn á íbúðalán skattfrjálst. Ég legg til við hæstv. ríkisstjórn að hún hugi að því að samþykkja þessa breytingu þar sem hún kynnti nýverið að hún ætlaði að framlengja séreignarsparnaðarleiðina á einhvern mjög takmarkaðan hátt. En það kom í ljós við vinnu nefndarinnar að það er ekki enn byrjað að útfæra það og það hefur ekki komið neitt til þingsins. Þannig að ef þessi tillaga verður ekki samþykkt þá mun koma rof í notkun á séreignarsparnaðinum hjá þeim fáu sem fá framlengingu samkvæmt yfirlýsingu hæstv. ríkisstjórnar. Séreignarsparnaðarleiðin er mjög efnahagslega hagkvæm; hún hvetur til sparnaðar og hjálpar fjölskyldunum í landinu að eignast öruggt skjól yfir höfuðið akkúrat þegar fjölskyldan er að stækka. (Forseti hringir.) Það hjálpar til þegar þrengir að í efnahagslífinu að skuldir heimilanna séu lægri og þetta mun skapa ríkissjóði auknar tekjur í framtíðinni í kjölfar aukins sparnaðar og aukinna lífeyriseigna í gegnum húsnæði hjá almenningi.