breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Það kemur líf í salinn þegar maður mætir í ræðustól Alþingis, það er alveg ljóst, loksins. Hér er um góða breytingartillögu meiri hlutans að ræða sem snýr að sóknargjöldum. Við í Framsókn styðjum þá breytingu að sjálfsögðu. Sömuleiðis viljum við minna á mikilvægi þess að farið verði í endurskoðun sem snýr að sóknargjöldum. Sá hringlandaháttur sem hefur verið undanfarið og snýr að þjóðkirkjunni, sem er einn af hornsteinum samfélagsins — við getum ekki haft þetta svona til lengri tíma. Þessu verðum við að breyta og ég hvet hæstv. ráðherra dómsmála, kirkjumálaráðherra, að beita sér í því.