157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:47]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp til að lýsa yfir stuðningi okkar Sjálfstæðismanna við þessa breytingartillögu meiri hlutans varðandi hækkun sóknargjaldanna en á sama tíma til að lýsa yfir miklum vonbrigðum yfir því að fjárhæðin sé ekki verðbætt eins og hún hefur verið undanfarin ár. Mig langar til að vísa sérstaklega í umsagnir sem bárust við þetta mál frá fulltrúum Landakirkju í Eyjum þar sem vakin er athygli á því að söfnuðir landsins séu reknir á hálfu framlagi samkvæmt lögum. Þessi framganga gagnvart sóknum landsins er auðvitað miður. Ég hvet okkur til þess að gera betur.