157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:48]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Herra forseti. Ég tek undir það sem hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttir sagði hér, við styðjum þetta í Sjálfstæðisflokknum. En það er auðvitað rosalega bagalegt hvernig þetta hefur verið í langan tíma, að hér þurfi þingmenn alltaf að berjast fyrir því að greidd séu eðlileg sóknargjöld. Það koma aftur og aftur tillögur frá fjármálaráðuneytinu og skiptir greinilega engu máli hver er við stjórn hvað það varðar, alltaf koma þessar tillögur. Jú, ég styð þetta. En, virðulegur forseti, hér hefur meiri hluti í hv. efnahags- og viðskiptanefnd farið stóran í því að krónutölur skuli halda verðgildi sínu. Þessir skattar skuli halda verðgildi sínu. En þegar kemur að sóknargjöldum er ekkert verið að spá í það.