157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:49]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Það er okkur ljúft og skylt að taka slaginn með kirkjunni fyrir eðlilegum sóknargjöldum. Ég tek undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur að það er búið að vera ótrúlegt hvernig þetta kemur aftur og aftur hingað inn. Það sem er þó skárra við þessa breytingartillögu, og við styðjum, er að hún leggur ekki til lækkun eins og frumvarpið fól upphaflega í sér frá hæstv. ríkisstjórn, að það ætti að lækka sóknargjöldin. Þessi tillaga felst í því að þau standi í stað. En ef vel hefði átt að vera hefðu þau að lágmarki átt að verða verðbætt af því að kirkjan á enn þá inni frá því eftir bankahrunið í sóknargjöldunum. Mögulega getur það verið líka með einhverjum öðrum leiðum en bara þessari hækkun á sóknargjöldunum sjálfum, öðrum samningum, enda höfum við sett ýmis lög og kvaðir á þjóðkirkjuna sem hún þarf að standa undir og við þurfum að hjálpa henni að standa undir þeim.