157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:50]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Þetta er svona einn af þessum litlu varnarsigrum sem hafa náðst hér undanfarnar vikur og því ber að fagna. Því ber að fagna að það sé ekki verið að lækka sóknargjöldin og sóknargjöldin standi í stað. En ég tek undir með þeim hv. þingmönnum sem hafa hér talað, hv. þm. Vilhjálmi Árnasyni, að auðvitað hefðum við viljað sjá verðbætt sóknargjöld. Það þarf að horfa til framtíðar þegar kemur að því hvernig við ætlum að hækka sóknargjöldin þannig að bragur sé á til þess að standa hér undir kirkjunni og rekstri hennar og mikilvægri starfsemi hennar hér um allt land. Kirkjan gegnir gríðarlega mikilvægu hlutverki í samfélagi okkar og ekki síst í hinum dreifðu byggðum landsins.