breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. efnahags- og viðskiptanefnd fyrir að standa með þjóðkirkjunni og gera þessa breytingu að sóknargjaldið haldist óbreytt frá fyrra ári. Ég ætla líka að taka undir þá gagnrýni að þessi upphæð sé ekki verðbætt eins og önnur krónutölugjöld. Ég hef í því sambandi áður nefnt hér í ræðustól Alþingis að t.d. eru afnotagjöld af RÚV að fá 3,7% hækkun. Mig langaði líka að hitta þann starfsmann fjármálaráðuneytisins sem í sinni ótrúlegu bjartsýni á hverju einasta ári leggur til lækkun sóknargjalda og er búinn að gera það í mörg ár og nær alltaf breytir þingið þeirri tillögu og stendur þar með með þjóðkirkjunni í landinu.
Ég vil líka fá að hvetja hæstv. dómsmálaráðherra til verka því að ég skipaði nefnd (Forseti hringir.) til að endurskoða þetta fyrirkomulag þegar ég var ráðherra dómsmála og það hefur ekkert heyrst frá þeirri nefnd. Hún virðist hafa dáið þegar nýr ráðherra kom í embættið (Forseti hringir.) og ég ætla að hvetja ráðherra til að koma með tillögur frá nefndinni um að breyta þessu fyrirkomulagi til frambúðar. (ÞorbG: Þær eru ekki enn þá komnar. (GHaf: Nefndin er að störfum.))