breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Ég fagna mjög þeirri miklu samstöðu sem ríkir hér í þingsal um mikilvægi þess að standa vörð um þessi gjöld, að þau séu ekki lækkuð milli ára. Ég fagna einnig því sem kemur fram í ræðum minni hlutans, sá skilningur á því að það þurfi að innheimta gjöld til að veita ákveðna þjónustu. Þegar maður vill standa vörð um þjónustu þjóðkirkjunnar þá þarf að innheimta sérstök sóknargjöld til að geta fjármagnað hana. Um þetta snúast einmitt fjárlög og bandormar. Það er gott að fá eitt svona lítið dæmi um mál sem við getum öll sameinast um að sé gott mál til þess að læra hvernig fjármál ríkisins virka og af hverju það skiptir máli að innheimta gjöld sem standa undir þeirri þjónustu sem við viljum að ríkið veiti.
Ég verð að viðurkenna og lýsa yfir ákveðnum vonbrigðum með að þessu fyrirkomulagi hafi verið leyft að viðgangast ár eftir ár í tíð síðustu ríkisstjórnar; að þjóðkirkjan sjálf hafi þurft að koma hér og betla út fjármagn hjá fjárlaganefnd og alltaf sé lögð til lækkun. Þetta hljómar eins og enn eitt verkefnið sem núverandi ríkisstjórn þarf að framkvæma en síðasta ríkisstjórn talaði bara um.