breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Það ber að fagna þessari breytingu sem er til komin frá meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar. Samstarf í þeirri nefnd, hvað þetta mál varðar, var einstaklega gott. Þetta eru skýr skilaboð til þjóðkirkjunnar, þetta eru skýr skilaboð til klerka landsins um að þjónusta kirkna hringinn í kringum landið er mikilvæg, sérstaklega í litlum byggðarlögum þar sem kirkjur landsins halda uppi menningarstigi, tónlistarlífi og sálgæslu sem er gríðarlega mikilvæg í minni plássum landsins þar sem aðra þjónustu en ekki að fá eins og kirkjan veitir í þeim tilvikum. Ég styð þetta mál heils hugar.