157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:57]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Það er alltaf ánægjulegt þegar hv. þingflokksformaður Samfylkingarinnar kemur hér upp og talar yfir okkur af sinni alkunnu visku og ég kann honum miklar þakkir fyrir. Ég hvet hann endilega til að kynna sér það hvernig þessi innheimta og skil á sóknargjöldunum komu til og sögu sóknargjaldanna. Það væri kannski lærdómsríkt fyrir hv. þingmann. Sömuleiðis hvet ég hann og þá sem eru að hlusta og landsmenn til að kynna sér það hvernig Samfylkingin hefur hagað atkvæðum sínum undanfarin ár þegar við höfum verið að kjósa um nákvæmlega sömu atriði, einmitt það að standa vörð um sóknargjöldin og skila söfnuðinum og sóknunum þeim fjármunum sem þeim ber. Ég hvet hv. þingmann til þess.