157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[15:58]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Ég vil nýta þetta tækifæri aftur og fagna þeirri miklu samstöðu sem var hér í þingsalnum um að styðja þetta góða mál. Ég ítreka það að hér er verk að vinna, verk sem hefur greinilega verið mikið rætt í tíð síðustu ríkisstjórnar, þ.e. að koma þessum fjárlögum í fastar skorður svo að þjóðkirkjan þurfi ekki að koma árlega fyrir fjárlaganefnd og betla um að framlög hennar séu ekki lækkuð. Mér þykir sjálfum persónulega til skammar að þetta hafi verið fyrirkomulagið síðastliðin ár en ég ber fullt traust til hæstv. dómsmálaráðherra að hér verði fundið gott framtíðarfyrirkomulag. (Gripið fram í: Heyr, heyr. )