breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Eins þakklátur og ég er fyrir hv. þm. Guðmund Ara Sigurjónsson, að það sé loksins kominn einhver í Samfylkinguna sem stendur með þjóðkirkjunni — af því að þetta fyrirkomulag, eins og kom hér fram áðan, kom á í tíð Samfylkingarinnar. Ég vildi líka geta þess að einmitt áðan nefndi ég það sérstaklega að lausn þessa máls er ekki endilega bara hækkun á sóknargjöldum. Við gætum þurft að fara einhverjar aðrar og skynsamlegri leiðir til að fjármagna hlutverk, skyldur og kvaðir sem við höfum falið þjóðkirkjunni og hún sinnir umfram aðra söfnuði í landinu. Hún hefur aukið hlutverk sem er stjórnarskrárbundið.