157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:00]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Hér er verið að greiða atkvæði um fjárhæð vegna gjaldskyldrar losunar sem á sér stað árið 2026, 10.123 kr. fyrir hvert tonn. Það hefur margoft komið fram hér í þessum þingsal á undanförnum misserum að svo virðist vera sem stjórnvöld, ekki bara þessi ríkisstjórn heldur líka ríkisstjórnin á síðasta kjörtímabili og þær á undan, hafi ekki hugmynd um hvert þessi peningur fer sem lagður er hér á fyrirtæki. Það virðist enginn vita hvert þessi peningur fer og hvort hann komi hingað til baka. Því er haldið fram að þetta skili sér að einhverju leyti í ríkissjóð en hann skilar sér svo sannarlega ekki aftur til fyrirtækjanna sem borga þetta. Ég hef ekki hugmynd um, og ég efast um að nokkur þingmaður hafi hugmynd um hverju hann er að greiða atkvæði hér með, þessar 10.123 kr. fyrir tonnið, losunarheimildir og hvert þær fara og hver tekur við þessum peningum á endanum. Miðflokkurinn situr hjá í þessu máli.