157. löggjafarþing — 50. fundur, 16. des. 2025.
breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
2. mál
Virðulegur forseti. Þessar losunarheimildir eru vissulega óljóst gjald en við getum ekki annað en fagnað því í þingflokki Sjálfstæðisflokksins að gjaldið hafi lækkað úr 12.000 kr. og eitthvað niður í 10.000 kr. Við getum ekki annað en stutt það þegar hæstv. ríkisstjórn kemur með einhverjar tillögur til lækkunar, sama hvaða nafni hún heitir. (Gripið fram í: Blekking. )