157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:03]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Hvað er að frétta? Þurfti endilega að koma með örlitla hækkun til Ríkisútvarpsins, fjölmiðils í almannaþágu, eftir allt sem á undan er gengið, eftir alla umræðuna um vanda einkareknu litlu fjölmiðlanna út um allt land, eftir öll fyrirheitin um að taka þessi mál til gagngerrar endurskoðunar, boða hér frumvarp þar sem menn virðast í umræðunni vera búnir að sammælast um það hér, held ég, stjórnarmeirihlutinn og stjórnarandstaðan, að Ríkisútvarpið sé sá þrándur í götu sem er á fjölmiðlamarkaði. Þurfti þá endilega að hækka framlagið? Hefði þetta ekki mátt bíða endurskoðunar? Ég og Miðflokkurinn greiðum atkvæði gegn þessari fjárveitingu.