157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:04]
Horfa

Snorri Másson (M):

Virðulegur forseti. Það sem er náttúrlega umhugsunarvert í þessu er sú ráðgáta hvernig Ríkisútvarpinu tekst að reka sig með halla á hverju ári miðað við þessar fjárveitingar, 7 eða 8 milljarða. Fyrir okkur sem höfum starfað í fjölmiðlum er þetta óskiljanleg ráðgáta. Hvernig er hægt að eyða svona miklum peningum í reksturinn? En stjórnvöld hér og þingið halda áfram að taka þátt í bullinu, auðvitað líka að hluta til, eins og ég hef bent á, af því að það hentar þeim pólitískt. En síðan er líka þetta: Það að menn skuli í þessum lið fara í að hækka þetta gjald gefur ákveðin fyrirheit um niðurstöðurnar sem bíða okkar í margboðaðri heildarendurskoðun stjórnvalda á fjölmiðlamarkaði. Núna vitum við meira og minna í hvað stefnir; óbreytt ástand, meira RÚV, minna allt hitt.