157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:06]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Já, hér skal hækka, eins og hinar krónutölurnar, um 3,7%. Hér skal ekkert gefa eftir. Við þurfum ekkert að uppreikna sóknargjöldin til kirkjunnar en þegar kemur að RÚV þá skal það hækka. Áfram gakk. Bíddu, hvað vorum við að gera hér í fjölmiðlalögum, þar sem var líka verið að stagbæta einhverja heildarendurskoðun sem hæstv. ríkisstjórn ætlar sér að fara í? Nei, munið þið að þá var rosalega mikilvægt að lækka framlagið til stóru miðlanna. Þá ætluðum við að taka af Sýn og Morgunblaðinu því það væri í anda lýðræðisins.

Virðulegur forseti. Þessi framkoma hæstv. ríkisstjórnar við frjálsa fjölmiðla í landinu er orðin algerlega óboðleg. Þetta er eitt prik í þá átt.