breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Sjálfstæðisflokkurinn lagði til við atkvæðagreiðslu um fjárlög að leggja niður útvarpsgjaldið og spara þar með hjónum um 50.000 kr. á ári í skattgreiðslur, skera RÚV niður um sirka 5 milljarða og taka það af auglýsingamarkaði. Það er í rauninni raunhæf aðgerð og í takt við það að við lifum núna á árinu 2025 og 2026 er að renna í garð með öllum sínum tækniframförum, hlaðvörpum, streymisveitum og öðru, þó svo að það eigi að skattleggja það líka sem kallast menningarframlag. Það er raunaðgerð til að takast á við nútímafjölmiðlun og létta undir með frjálsum fjölmiðlum í dag en ekki hækka og auka byrðarnar á fjölskyldurnar og heimilin í landinu og alla lögaðila með því að borga meira inn í þessa hít sem er uppi í Efstaleiti.