157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:08]
Horfa

Þorgrímur Sigmundsson (M):

Herra forseti. Nú skal fóðra betur bleika fílinn eða er þetta kannski sérstakt Eurovision-framlag? Ég velti því fyrir mér hvort það væri ekki nær að lofa fólkinu í landinu að ráða hvaða miðla það velur að nýta sér. Ég er í það minnsta sannfærður um að það verður mjög erfitt að rökstyðja þessa hækkun því að ekki er verið að bæta í þjónustuna. Það vitum við. Nú hefur nýlega verið tekin sú ákvörðun að taka líklega eitt vinsælasta efnið sem stöðin hefur þó haft upp á að bjóða og taka ekki þátt í því en samt ætlum við að borga meira. Ég veit það ekki, herra forseti, hvað þarf eiginlega orðið til af rökum til þess að menn opni augun fyrir þessum útblæstri þarna upp frá í leiti — heitir það ekki það? Ég er að norðan. (Gripið fram í: Efstaleiti.) Takk fyrir, hv. þingmenn. Er ekki bara komin ágæt fóðrun á þetta? Þetta er gjörsamlega gengið út fyrir öll mörk.