157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:11]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Hér er lögð til hækkun á tryggingagjaldi með nýju markaðsgjaldi sem, ef ég skil rétt, á að renna til starfsemi til þess að fjármagna Íslandsstofu og á móti eru einhverjar lækkanir á rekstrarheimildum Íslandsstofu.

Virðulegur forseti. Þetta er þvert á væntingar atvinnulífsins sem hefur væntingar til þess að tryggingagjald og launatengd gjöld lækki. Loforðið um lækkun tryggingagjaldsins hefur legið fyrir í mörg ár og þetta er ákaflega ógagnsæ fjármögnun opinberrar stofnunar. Ef menn eru sammála um að reka opinbera stofnun eins og Íslandsstofu, sem má alveg deila um hversu mikið umfang á að veita, þá er fjármögnunin með þessum hætti óásættanleg fyrir atvinnulífið. Miðflokkurinn leggst gegn þessari breytingartillögu og upptöku þessa nýja gjalds.