157. löggjafarþing — 50. fundur, 16. des. 2025.
breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
2. mál
Virðulegur forseti. Við breytingar á lögum um Íslandsstofu var niðurstaðan í samstarfi við atvinnulífið að leggja á markaðsgjald sem yrði til þess að fjármagna rekstur Íslandsstofu. En nú virðist vera brestur þar á og það á að taka það úr sambandi. Þá hafa Samtök atvinnulífsins bent góðfúslega á það að þá sé forsendan fyrir því að innheimta markaðsgjald farin. Þá er langbest að vera ekkert að innheimta markaðsgjaldið og lækka bara tryggingagjaldið. Við erum á rauðu í þessu máli.