157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:13]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Herra forseti. Þetta er brýnt og þarft mál og mikilvægt fyrir örorku- og lífeyrisþega. Með því að koma í veg fyrir víxlverkun greiðslna lífeyris frá Tryggingastofnun ríkisins og frá lífeyrissjóðum verður komið í veg fyrir skerðingu lífeyris hjá um helmingi þeirra sem fá örorkulífeyri og fá jafnframt greiðslur frá lífeyrissjóðum. Þetta er gott mál og ég segi já.