breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Þetta er margbreytileg atkvæðagreiðsla og mér skilst að hér sé um ágætismál að ræða. Ég vil hins vegar vekja athygli á því sem hv. þm. Jens Garðar Helgason nefndi hér, að ríkisstjórnin var hér áðan að ganga þvert gegn samkomulagi sem var gert við Samtök atvinnulífsins á sínum tíma. Það var búið að vinna mjög lengi að þessu, þverpólitísk samstaða um að þetta samkomulag myndi halda. Það var því kannski stærra mál en menn áttuðu sig á þegar ríkisstjórnin ákvað að svíkja þetta samkomulag og þar af leiðandi er búið að kippa grundvellinum undan því, virðulegi forseti, að hafa tryggingagjaldið eins og það er núna, eins og hv. þm. Jens Garðar Helgason vísaði til. En aðalatriðið er þetta: Þetta eru skilaboð um það að aðilar vinnumarkaðarins geti ekki treyst ríkisvaldinu.