157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:17]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Það er sorglegt að sjá þennan rauða lit hjá stjórnarliðum. Ég ætla að leyfa mér að vera hér í kjördæmapoti. Ég er þingmaður Suðvesturkjördæmis, þ.e. Garðabær, Seltjarnarnes, Kópavogur, Hafnarfjörður, Mosfellsbær og Kjós. Þessi ríkisstjórn reynir ítrekað að hækka skatta á fólk sem þar býr; venjulegt fólk, fjölskyldufólk, millistétt. Muna kannski einhverjir eftir kosningabaráttunni þegar þetta fólk fór stóran í að tala um það að hækka ekki skatta á venjulegt fólk sem er talin millistéttin í þessu landi? Hér er sérstakt minnisblað frá hæstv. fjármála- og efnahagsráðuneyti til að reyna að rekja það hvar fólk nýtir þetta. Já, það er í sveitarfélögunum í Suðvesturkjördæmi þar sem barnafjölskyldur búa, þar sem venjulegar fjölskyldur búa, þar sem fólk getur farið í fæðingarorlof, fengið leikskólavist og samskattað, nýtt milliþrepin. Það þarf ekki nema ljósmóður á Landspítalanum sem er kannski með 1.2000.000–1.300.000 kr. í laun með yfirvinnu sem núna fær 900.000 kr. hámark úr Fæðingarorlofssjóði (Forseti hringir.) en maðurinn hennar, viðskiptastjórinn, skal sko ekki fá að njóta þess að greiða í milliþrepinu. Ég ætla að biðja kjósendur í þessum sveitarfélögum að muna hverjir vilja hækka skatta á þau núna þegar kemur að sveitarstjórnarkosningum.