breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Frú forseti. Þetta er enn ein breytingin þar sem reynt er að fela hvað raunverulega er verið að gera. Hér er verið að hækka skatta og sagt að það sé bara á þá tekjuhæstu. Það var pantað minnisblað frá ráðuneytinu en raunveruleikinn er sá að þetta hefur áhrif á öll hjón og sambúðarfólk á mismunandi stigum lífsins. Þetta hefur mjög víðtæk áhrif og þetta er mikil skattahækkun. Svo heldur meiri hlutinn því fram að hér sé um að ræða jafnréttismál, að þetta sé í raun og veru tillaga helst fyrir konur af því að þær eru oftar heimavinnandi. Þetta er svo langsótt skýring þegar raunveruleikinn er sá að þessi ríkisstjórn ætlar á engan hátt að draga úr sameiginlegri ábyrgð hjóna. Þau taka þetta skref en sameiginleg ábyrgð hjóna á skattaskuldum hvors annars er enn þá óbreytt. Við styðjum ekki þessa skattahækkun.