breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Samkvæmt skilgreiningu ríkisstjórnarinnar er hér um að ræða skatt á óvenjulegt fólk og hópur óvenjulegs fólks í samfélaginu fer stækkandi með hverri skattahækkuninni sem rennur hér í gegn nema hæstv. ríkisstjórn ætli að viðurkenna það að hún einfaldlega ætli sér ekki að standa við kosningaloforðið um að hækka ekki skatta á venjulegt fólk. Auðvitað hefur ríkisstjórnin, með öllum þeim tillögum sem við höfum verið að ræða hér og greiða atkvæði um, verið að hækka skatta á venjulegt fólk. Á ólíkan hátt, á ótrúlega fjölbreytilegan hátt, er verið að hækka skatta á alla Íslendinga með þessum aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Niðurstaðan er því sú að óvenjulega fólkið er í þessari sérkennilegu ríkisstjórn sem segir eitt, gerir eitthvað allt annað og getur svo ekki fært rök fyrir máli sínu öðruvísi en að tala eins og hún lifi í einhverjum hliðarveruleika.