157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:21]
Horfa

Jens Garðar Helgason (S):

Virðulegur forseti. Hér eru a.m.k. 15 þús. heimili undir. Og hvað eiga þau sameiginlegt? Jú, þar búa skattgreiðendur sem eru harðduglegir. Þetta er vinnandi fólk sem borgar sína skatta. En hæstv. ríkisstjórn ætlar í rauninni að minnka þær líkur og möguleika núna. Það er alveg ótrúlegt. Hér er talað um að þetta sé ríkasta fólkið. Þetta er skrifstofufólk, þetta eru sjómenn, þetta er heilbrigðisstarfsfólk, þetta eru iðnaðarmenn. Þetta er bara venjulegt vinnandi millistéttarfólk á Íslandi sem er verið að taka þetta af. Það er ótrúlegt að horfa upp á töfluna og sjá hvernig þessi atkvæðagreiðsla fer fram. Ótrúlegt.