breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég held að öllum sem hafa fylgst með þessari umræðu í dag ætti að vera ljóst að hér er um verulegar skattahækkanir að ræða og búið að greiða atkvæði af hæstv. ríkisstjórn um ansi margar og hér er ein til viðbótar. Samsköttun hjóna er bara mjög mikilvæg og hefur reynst mjög mörgum venjulegum fjölskyldum mjög vel. Því styðjum við í Framsókn þessa breytingartillögu um að 25. gr. falli á brott. Það eru ófá símtöl sem hv. þingmaður sem hér stendur hefur fengið frá venjulegu fólki í Norðvesturkjördæmi, venjulegu fólki, millistéttarfólki, sjómönnum, til þess að hvetja þann sem hér stendur til að berjast gegn því að þessi grein falli á brott og því að sjálfsögðu munum við í Framsókn greiða atkvæði með þessari mjög svo góðu og mikilvægu breytingartillögu við þetta annars ekki góða frumvarp.