breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Ákvæði þetta sem verið er að greiða atkvæði um, um að afnema heimild hjóna til þess að nýta ónýtt skattþrep hvors annars, á rætur að rekja svona tíu ár aftur í tímann til skrifstofu kynjaðrar fjárlagagerðar í fjármálaráðuneytinu. Hún hefur komið nokkrum sinnum fram á þingi með vísan til jafnréttissjónarmiða. Það var tilgangurinn fyrst. Núna kemur þessi ríkisstjórn og ber þetta á borð undir því yfirskini að loka einhverjum glufum. Þetta ákvæði er óhjákvæmilegur hluti og órjúfanlegur hluti, a.m.k. í einhverri mynd, af fjölþrepa skattkerfi sem hér var tekið upp á Íslandi fyrir rúmum áratug. Órjúfanlegur hluti. Það er mikill misskilningur, ofboðslegur misskilningur hjá hæstv. ríkisstjórn, hæstv. fjármálaráðherra og starfsfólki hans í ráðuneytinu, að halda að hægt sé að vera með fjölþrepa skattkerfi, eins og við höfum, án þess að mæta þeim vanda sem kemur upp samfara því. Þessi heimild er órjúfanlegur þáttur slíks kerfis. Það eru mikil mistök að afnema þessa heimild (Forseti hringir.) og Miðflokkurinn greiðir atkvæði gegn þessari tillögu hæstv. fjármálaráðherra. Þingmaðurinn segir nei.