breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Ég segi hátt og skýrt nei við þessari tekjuskattshækkun vinstri stjórnarinnar á venjulegt fólk. Þetta getur verið fólk þar sem annar makinn ætlar að klára nám, er í fæðingarorlofi, tímabundin veikindi, langvarandi veikindi, annar aðilinn vinnur langt frá heimili og fjöldinn allur af slíkum ástæðum er fyrir því að fólk nýtir sér samsköttun hjóna. Hjón sem bera fjárhagslega skattaábyrgð fyrir hvort annað, af hverju mega þau ekki njóta þess að vera samsköttuð eins og hefur alltaf verið gert ráð fyrir? Þetta þarf að ganga í báðar áttir. Þetta er skýrasta dæmið um tekjuskattshækkun á venjulegt fólk, fjölskyldurnar í landinu. Til hamingju með þetta vinstra afrek, kæra Viðreisn.