breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegi forseti. Í Norðausturkjördæmi býr líka venjulegt fólk. Þetta hefur áhrif á fjölmargar fjölskyldur í Norðausturkjördæmi. Þetta hefur áhrif á fjölskyldur þar sem sjómaður er fyrirvinnan. Þetta hefur áhrif á störf í landbúnaði sömuleiðis þar sem þekkist mjög vel að annar makinn vinni utan heimilis. Við þekkjum öll hvernig staðan er í landbúnaði hvað varðar launagetu og svo mætti lengi telja. Þannig að fara þessa leið, virðulegi forseti, er hreint út sagt eitthvað sem ég á mjög erfitt með að skilja og ég segi nei.