157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:33]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Eins og skýrt hefur komið fram þá er þetta skattahækkun á venjulegt fólk, þetta er skattahækkun á fjölskyldufólk. Þetta er m.a. skattahækkun á fólk sem er í fæðingarorlofi. Við vorum að afgreiða breytingar á fæðingarorlofslöggjöfinni sem hv. þingmenn Viðreisnar og Samfylkingarinnar hafa viljað fagna mjög. Ég fagna því líka. Hvað vorum við að gera þar? Við vorum að gera örlitlar breytingar á þeim mikilvægu breytingum sem síðasta ríkisstjórn gerði á fæðingarorlofskerfinu. Af hverju gerðum við þær ekki síðasta vor? spurði ég hæstv. ráðherra. Vegna þess að það var ekki búið að fjármagna það. Það var ekki búið að fjármagna það að láta þakið taka gildi strax, óháð fæðingardegi barns. Nú skil ég að það er búið að fjármagna það, það er með svona leiðum. Þeir sem voru að eignast barn núna á síðustu mánuðum, fá núna 900.000 kr. um áramótin í þakið, geta ekki samnýtt skattana sína þannig að á endanum kemur ekkert meira í umslagið hjá þessu fólki. Þetta er aðför að venjulegu fólki, venjulegu millistéttarfólki, fjölskyldufólki. Þetta er skattahækkun. Þetta er allt sem þessi ríkisstjórn sagðist ekki ætla að gera.