breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Virðulegur forseti. Samkvæmt hæstv. ríkisstjórn erum við hér að setja skatta á óvenjulegt fólk, 15 þús. heimili, svona einn Kópavogur, af óvenjulegu fólki. Þetta er í alvöru málflutningur Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Hvað er verið að taka af hérna? Það sem öllum finnst vera sjálfsagt er að hjón og sambúðarfólk séu ein eining. Og ríkisstjórnin segir: Þið eruð eining þegar þið skuldið skatta. Þá eruð þið eining. Þá förum við á eftir ykkur, en þið megið ekki njóta þess að búa og lifa saman og vera ein eining þegar kemur að því.
Virðulegur forseti. Af öllum vondu skattahækkunum ríkisstjórnarinnar, af öllum vondu, af öllum kosningasvikunum er þetta versta skattahækkunin og mestu kosningasvikin. (Forseti hringir.) Hér er verið að hækka skatta á venjulegt fólk.
(Forseti (IngÞ): Og þingmaðurinn segir?)
(GÞÞ: Hvað heldur þú? Ég segi nei.)