157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:36]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf):

Virðulegi forseti. Hér greiðum við atkvæði um að afnema skattafslátt á þá sem eru í efstu tekjutíund landsins ef þeir eru í sambúð eða ef þeir eru giftir einstaklingi sem er í neðri skattþrepum. Þetta er ákveðinn skattafsláttur fyrir tekjuhæsta fólkið í landinu. Það er eitt sem ég hef aldrei skilið varðandi þessa undanþágu, varðandi þetta sem hefur verið við lýði síðustu tíu ár, af því að nú þekkir maður marga sjómenn: Ef tveir sjómenn sem eru tekjuháir, og það er gott, vinna hlið við hlið og einn sjómaðurinn á eiginkonu en hinn er fráskilinn, báðir eiga tvö börn, af hverju á sá sem er fráskilinn að borga hærri skatta en sá sem er í hjónabandi, (Gripið fram í: Ha? )á konu heima og getur samnýtt tekjuskattsþrepið með? (Gripið fram í.) Ef þið gætuð útskýrt þetta fyrir mér þá myndi ég kannski skilja röksemdafærsluna með málinu. (Gripið fram í: Það er vonlaust. )

(Forseti (IngÞ): Forseti biður hv. þingmenn um að gefa þingmanninum hljóð.)

Ég get ekki séð hver rökin eru fyrir því að veita skattafslætti á efstu tekjutíundir landsins. Þetta er gott mál.

(Forseti (IngÞ): Hvernig greiðir þingmaðurinn atkvæði?)

(GAS: Ég segi já.)