breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Fjölskyldan er hornsteinn samfélagsins og þessari ríkisstjórn er ekkert heilagt. Nú reiðir hún skattasleggjuna hér á loft og fyrir barðinu verða fjölskyldurnar í landinu, barnafólkið okkar. Hér er, eins og réttilega hefur komið fram, vegið að 15 þús. fjölskyldum, 30 þús. einstaklingum þar sem ríkisstjórnin ætlar að seilast ofan í vasa þessa fólks og ná í 3.000 millj. kr. eftir öll loforðin. Eftir að hafa sagt: Við ætlum að standa með fólkinu í landinu, við ætlum ekki að hækka skatta á venjulegt fólk, þá er höggið í okkar heilögustu einingu, fjölskylduna. Fólk má bera sameiginlega ábyrgð á börnum sínum, á skuldum sínum en ekki á tekjum inni á sínu heimili. (Forseti hringir.) Ég segi nei. Þarna er vegið að frelsi fólks til þess að fá að haga sínu lífi eins og því hentar. Ég segi nei. Þetta er vont mál.