157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:39]
Horfa

Halla Hrund Logadóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég held að séreignarsparnaðurinn og þetta sé eitthvað sem hafi skipt flestar fjölskyldur hvað mestu máli þegar kemur að því að reyna að byggja upp heimili, ef fólk er að fara í nám eða eignast börn. Það skiptir máli að við getum deilt byrðunum og í mínum huga eru þetta áþreifanlegir þættir sem venjulegt fólk finnur fyrir að nýtist. Ég held að þegar við erum að tala um þessa áþreifanlegu þætti eins og séreignarsparnaðinn, eins og samsköttunina, þá sé mikilvægt að halda í þá því að það er líka eitthvað sem skapar hvata hjá fólki til að gera betur, mennta sig, eignast börn, allt þetta sem við viljum að íslenskt samfélag standi fyrir. Ég get ekki stutt það að við séum að fella þetta út. Ég segi nei.