157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:41]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Herra forseti. Í gær samþykktum við hér eingreiðslur til fátækasta fólksins í landinu sem var mjög jákvætt skref. Þá var ekki tekið tillit til maka og tekna maka heldur eingöngu út frá tekjum einstaklingsins. Hins vegar gildir annað í þessu máli. Þá þarf að horfa til tekna hjóna. Ég hvet hæstv. ríkisstjórn til að vera samkvæm sjálfri sér hér í málum því að við vitum það öll sem höfum eignast börn og verið að reyna að koma þaki yfir höfuðið okkar hversu erfitt tímabil það er og þetta mál mun hafa veruleg áhrif á þann hóp. Þingmaður segir nei.