157. löggjafarþing — 50. fundur, 16. des. 2025.
breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
2. mál
Virðulegur forseti. Í öllu þessu skatta- og álagningarflóði sem er að fara að renna núna yfir heimilin og fyrirtækin í landinu eru verðtryggðar skuldir heimilanna að hækka um 20 milljarða á næstu mánuðum og nú á enn frekar að þyngja byrðar heimilanna, heimila vinnandi fólks í landinu.
Virðulegur forseti. Þetta er enn einn jólabónusinn frá glufustjórninni til vinnandi fólks í landinu. Þetta er óumbeðinn jólabónus til hins vinnandi manns í landinu frá glufustjórninni og ég segi nei.