157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:44]
Horfa

Jón Gunnarsson (S):

Virðulegur forseti. Það er beitt ósvífni í skattlagningu. Það er hér bein atlaga að fjölskyldum og heimilum í landinu, atlaga sem er réttlætt með því að aðkoman hafi verið svo slæm þegar þessi ríkisstjórn tók við, sem er auðvitað algjört öfugmæli. Þegar allar tölur eru skoðaðar þá var staðan mjög sterk. Mig langar, virðulegi forseti, að bera það sem ríkisstjórnin er að gera núna saman við það sem Sjálfstæðisflokkurinn gerði þegar hann var í ríkisstjórn 2013–2016. Tók sannarlega við erfiðu og þröngu búi eftir hrunárin. Þá felldum við niður einmitt við þessar aðstæður alla tolla og vörugjöld af öllum heimilisvörum og nauðsynjum heimilanna, 20 milljarða skattalækkun á þessum tíma. Vöruverð lækkaði um 10–20%. Efling innlendrar verslunar. Þetta skilaði sér beint til heimilanna. (Forseti hringir.)

Virðulegur forseti. Ólíkt höfðumst við að. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)

(Forseti (IngÞ): Og þingmaðurinn segir?)

(JGunn: Nei.)