breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
Herra forseti. Ég verð að játa það að það var gott að fá hæstv. félagsmálaráðherra í pontu áðan og viðurkenna það að öll kosningaloforð hafi verið brotin. Hæstv. ráðherra nefnir hér að efnaminna fólk tilheyri hópnum venjulegt fólk. Ég get sagt hæstv. ráðherra það að það fólk á líklegast bíla og hér er verið að hækka skatta á venjulegt fólk. En ég bið þá sem eru að horfa að athuga hvaða aðferðafræði ríkisstjórnin beitir, að deila og drottna. Hún byrjar á því að skattleggja fjórar til fimm fjölskyldur í sjávarútvegi, og hverjir verða fyrir barðinu? Það eru minni sjávarútvegsfyrirtæki. Þessi stóru lifa af. Tekur síðan ferðaþjónustuna, og hverjir verða fyrir barðinu á því? Þeir stóru lifa af en minni ferðaþjónustufyrirtækin munu mögulega hrökkva upp af. Nú er ráðist á fjölskylduna. Skattar eru innheimtir af fjölskyldum saman en það má ekki lengur nýta skattþrep til lækkunar skatta. Til hamingju með það.
(Forseti (IngÞ): Og þingmaðurinn segir?)
(JPZ: Nei.)