157. löggjafarþing — 50. fundur, 16. des. 2025.
breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.
2. mál
Herra forseti. Hér er vegið að fjölskyldunni, grunneiningu þjóðfélagsins. Eftir sem áður bera hjón og sambúðaraðilar sameiginlega ábyrgð á skattaskuldum hvors annars. Hér fer ekki saman hljóð og mynd, herra forseti. Enn ein skattahækkun þessarar vinstri stjórnar því þetta er ekkert nema vinstri stjórn. Viðreisn og Flokkur fólksins hafa varpað af sér sauðargærunni og krumla skattasníkis er komin á kaf í vasa hjóna og sambúðarfólks. Ég segi nei.