157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:48]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Forseti. Ég velti fyrir mér hvort um einhvern misskilning sé að ræða því að hér kom hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson og hélt fram einhverjum miklum misskilningi um þetta mál, vegna þess að staðreyndin er sú að fráskilið fólk með sömu heildartekjur og heimili sem er samskattað getur verið að borga minna í skatt ef þetta er samþykkt. Fráskildir einstaklingar með sömu heildartekjur borga minna, þannig að þetta virðist vera einhver misskilningur hjá hv. þingmanni.

Ég vil líka minnast á það að hæstv. ráðherra, Inga Sæland, talaði um að fátækt fólk væri venjulegt fólk í hennar huga. Ég held að við getum öll verið sammála um það en var hún að meina að millitekjufólk og aðrir væru þá ekki venjulegt fólk? Hún kannski kemur og gerir grein fyrir því.

Að lokum vil ég hvetja forystumenn ríkisstjórnarinnar og þá sérstaklega hæstv. forsætisráðherra til að koma og útskýra af hverju verið er að leggja þetta fram og af hverju verið er að svíkja kosningaloforðin. Það væri gott ef einhver gæti útskýrt það fyrir landsmönnum. Ég segi nei.