157. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2025.

breyting á ýmsum lögum vegna fjárlaga 2026.

2. mál
[16:51]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegi forseti. Hér erum við enn að reyna að verja brottfall einnar skattaglufunnar, eins og hæstv. ríkisstjórn kallar þetta, eða þannig að gefa fólki tækifæri til þess að nýta sér ónýttan persónuafslátt fyrir fjármagnstekjuskatt. Þannig að ef þú hefur ekki tekjur sem fullnýta persónuafsláttinn þá geturðu nýtt það upp í fjármagnstekjuskatt. Þannig hefur þetta verið, mjög mikilvægt ákvæði, og leggjum við hér til að það verði áfram. Enn ein tekjuskattshækkun hæstv. ríkisstjórnar enda erum við hér að fjalla um breytingu á lögum um tekjuskatt.